Vegna ferðalags í næstu viku þá kemur 80's lag vikunnar snemma í þetta sinn.
The Romantics var stofnuð í  Detroit, Bandaríkjunum, á Valentínusardaginn árið 1977 af þeim Wally Palmar (söngur, gítar), Mike Skill (gítar), Rich Cole (bassi) og Jimmy Marinos (trommur, söngur).  Fyrsta breiðskífa sveitarinnar leit dagsins ljós árið 1980 og nefndist einfaldlega The Romantics.  Af vinsælum lögum af plötunni má nefna What I Like About You, When I Look In Your Eyes og She's Got Everything.  Á þeim tíma var hljómsveitin býsna vinnusöm því önnur breiðskífa hennar, National Breakout, kom út árið 1981 og sú þriðja, Strictly Personal, árið eftir.  Hvorug þeirra náði miklum vinsældum.  Þess ber að geta að áður en að útgáfu Strictly Personal kom hafði gítarleikarinn Mike Skill yfirgefið bandið og í hans stað komið Coz Canler.  Eftir útgáfu Strictly Personal snéri Mike Skill hins vegar aftur og þá sem bassaleikari því Rich Cole hafði sagt skilið við sveitina.
Það var ekki fyrr en við útgáfu fjórðu breiðskífu sveitarinnar árið 1983 að hún sló í gegn.  In Heat varð söluhæsta plata The Romantics en hún inniheldur meðal annars lögin Talking in Your Sleep og One in a Million sem urðu geysivinsæl.  Hér fyrir neðan má einmitt finna tengil á myndbandið við fyrrnefnda lagið.
Fimmta breiðskífa The Romantics leit dagsins ljós árið 1985 og bar hún nafnið Rhythm Romance.  Sveitin átti svo í áralöngum málaferlum við útgefanda sinn og sendi því ekki frá sér breiðskífu í hart nær tvo áratugi.  Það var ekki fyrr en árið 2003 að platan 61/49 kom út en fimm laga smáskífa, Made in Detroit, hafði komið út í millitíðinni (1993).  Auk þess höfðu orðið tíð trommaraskipti á þessu tímabili en núverandi trymbill sveitarinnar er Brad Elvis.
Talking in Your Sleep með The Romantics er 80's lag vikunnar að þessu sinni.
Heimildir: www.wikipedia.org, www.allmusic.com
The Romantics - Talking in Your Sleep (1983)
Fra Lippo Lippi var stofnuð í Ósló í Noregi árið 1978 af þeim Per Øystein Sørensen (söngur, hljómborð, hljóðgervlar), Rune Kristoffersen (gítar, bassi, píanó, hljómborð) og Morten Sjøberg (trommur, hljómborð).  Nafn hljómsveitarinnar er dregið af nafni ljóðs eftir Robert Browning frá 1855.
Fra Lippo Lippi hefur til þessa sent frá sér átta breiðskífur -  In Silence (1981), Small Mercies (1983), Songs (1985), Light and Shade (1987), The Colour Album (1989), Crash of Light (1990), Dreams (1992) og In a Brilliant White (2002).  Það var aðeins Songs sem náði einhverjum vinsældum í Bretlandi en hins vegar sló sveitin í gegn á Filippseyjum á níunda áratugnum og ku ennþá vera vinsæl þar um slóðir.
Shouldn't Have To Be Like That af plötunni Songs er 80's lag vikunnar.
Heimildir: www.fralippolippi.com, www.wikipedia.org, www.allmusic.com
Fra Lippo Lippi - Shouldn't Have To Be Like That (1985)
Talk Talk var stofnuð í London árið 1981 af þeim Mark Hollis (söngur, lagasmíðar), Paul Webb (bassi), Lee Harris (trommur) og Simon Brenner (hljómborð).  Á þeim tíu árum sem sveitin starfaði sendi hún frá sér fimm breiðskífur.
Fyrsta platan kom út árið 1982 og bar heitið The Party's Over (Talk Talk í Bandaríkjunum).  Platan náði sæmilegum vinsældum og voru lögin Talk Talk og Today hvað vinsælust.  Það var hins vegar við útgáfu annarrar breiðskífu sveitarinnar, sem bar titilinn It's My Life, árið 1984 sem hún sló í gegn.  Áður en að gerð þeirrar plötu kom hafði Simon Brenner hætt í sveitinni en í staðinn komið Tim Friese-Greene, pródúsent, lagahöfundur og hljómborðsleikari.  Platan varð vinsæl í Evrópu og Bandaríkjunum en hún innihélt hin vinsælu lög It's My Life, Such a Shame og Dum Dum Girl.  Þriðja plata Talk Talk, The Colour of Spring, kom út árið 1986.  Hún náði einnig miklum vinsældum og svo fór að hún varð söluhæsta plata hljómsveitarinnar.  Af lögum af þeirri plötu má nefna Life's What You Make It og Give It Up.  Þessar þrjár fyrstu plötur Talk Talk eru allar poppplötur en þær endurspegla þróun hljómsveitarinnar úr nýbylgju-synþapoppsveit yfir í popp-rokkband með tilraunakenndu ívafi.
Á fjórðu plötu Talk Talk, Spirit of Eden, sem kom út árið 1988 kveður svo við allt annan tón.  Poppið hefur verið lagt til hliðar og tilraunakennd tónlist tekin við.  Þessi plata náði litlum vinsældum en var lofuð af gagnrýnendum.  Það sama má segja um fimmtu og síðustu plötu sveitarinnar, Laughing Stock, sem kom út árið 1991 en margir gagnrýnendur telja þá plötu hreint meistaraverk.  Þessar tvær síðustu hljómplötur Talk Talk eru oft taldar marka upphaf post-rokksins.
Heimildir: www.allmusic.com, www.wikipedia.org
80's lag vikunnar er It's My Life af samnefndri plötu.  Áhugasömum er bent á að finna má fleiri frábær popplög með Talk Talk á YouTube, t.d. áðurnefnd Such a Shame, Dum Dum Girl og Life's What You Make It.
Talk Talk - It's My Life (1984)
Go West var stofnuð árið 1982 af þeim Peter Cox (söngur) og Richard Drummie (gítar).  Fyrsta hljómplata sveitarinnar kom út árið 1985 og bar nafn hennar; Go West.  Á plötunni má finna hið þekkta lag We Close Our Eyes en einnig lögin Don't Look Down, Call Me, og Eye to Eye sem urðu nokkuð vinsæl.  Árið 1987 kom út platan Dancin' on the Couch og árið 1992 platan Indian Summer.  Hvorug þeirra náði miklum vinsældum, jafnvel þó að á þeirri síðarnefndu megi finna lagið Faithful, sem varð nokkuð vinsælt, og svo hið geysivinsæla lag King of Wishful Thinking.  Upprunalega kom King of Wishful Thinking út árið 1990 og þá í kvikmyndinni Pretty Woman.  Svo fór að lagið varð eitt það mest spilaða í Bandaríkjunum það ár.  Hér fyrir neðan er tengill á myndbandið við lagið.
Þótt engin hljómplata hafi komið frá Go West síðustu 16 árin hefur sveitin starfað og verið nokkuð virk við hljómleikahald.
Heimildir: www.wikipedia.org, www.allmusic.com
Go West - King of Wishful Thinking (1990)
Vegna fyrirsjáanlegra anna þá kemur 80's lag vikunnar nokkuð snemma í þetta sinn.
Prefab Sprout [framb. prífeb sprát] var stofnuð árið 1977 í Newcastle, Englandi, af bræðrunum Paddy (söngur, gítar, píanó) og Martin McAloon (bassi).  Síðan þá hafa þeir bræður verið kjarni hljómsveitarinnar en nokkrir tónlistarmenn komið og farið.  Af þeim ber helst að nefna Wendy Smith (söngur) og Neil Conti (trommur).  Paddy McAloon hefur að langmestu séð um laga- og textasmíðar fyrir sveitina en hann er af mörgum talinn með allra bestu lagahöfundum Bretlands.
Prefab Sprout hefur til þessa sent frá sér sjö breiðskífur: Swoon (1984), Steve McQueen (1985; nefnd Two Wheels Good í Bandaríkjunum),  From Langley Park to Memphis (1988), Protest Songs (1989), Jordan: The Comeback (1990), Andromeda Heights (1997) og The Gunman and Other Stories (2001).  Þó að From Langley Park to Memphis hafi selst hvað best af plötum Prefab Sprout, ekki síst vegna vinsælda laganna The King of Rock and Roll og Cars and Girls, er það álit flestra gagnrýnenda að Steve McQueen sé besta plata sveitarinnar og algert meistaraverk.   Það er einmitt lagið Appetite af þeirri plötu sem má finna hér fyrir neðan.  Af öðrum lögum af Steve McQueen má nefna When Love Breaks Down, Goodbye Lucille #1 (oft betur þekkt sem Johnny, Johnny), Bonny og Faron Young.
Heimild: www.allmusic.com
Prefab Sprout - Appetite (1985)
Þetta eru áhugaverðar breytingar sem orðið hafa á Múlakvísl og fróðlegt að sjá hana svona vatnslitla og tæra því venjulega er hún grá af aurburði.  Það verður sannarlega spennandi að fylgjast með framvindunni á Mýrdalssandi.
Þótt því fari fjarri að ég sé jafn tengdur Múlakvísl og Reynir Ragnarsson, fyrrverandi lögreglumaður í Vík, þá mun áin alltaf verða mér hugleiknari en mörg önnur vatnsföll eftir að ég fór að henni, sem sérfræðingur Raunvísindastofnunar Háskólans, ásamt Vatnamælingamönnum er hún hljóp þann 7. júlí 2005.  Það var sama dag og sprengjutilræðin voru gerð í neðanjarðarlestunum í London.  Ég tók vatnssýni úr ánni sem var býsna vatnsmikil, dökkgrá af aurburði og angaði af brennisteinsvetni (hveralykt).  Vatnamælingamenn skutluðu mér með sýnið heim til Reynis Ragnarssonar og frúr þar sem ég síaði sýnið í þvottahúsinu hjá þeim hjónum.  Á meðan ég síaði þá rennslismældu þeir Vatnamælingamenn ána.  Síunin gekk afar hægt fyrir sig því síurnar stífluðust fljótt af öllum aurnum og þurfti ég því að skipta um síu í síuhaldaranum þrisvar eða fjórum sinnum.  Svo fór að það tók mig rúmlega tvo tíma að sía 5 lítra sýni en það tekur venjulega innan við hálftíma ef ekki er mikill aur í sýninu.  Ég man sérstaklega eftir því hversu mikil fýla var af árvatninu, einhverskonar blanda af brennisteinsvetni og járni.  Það er erfitt að lýsa þessari lykt en útbúnaðurinn, sem ég notaði í ferðinni, og hendurnar á mér lyktuðu í einn til tvo daga á eftir.  Já, svona hófust nú kynni mín af Múlakvísl.
Danny Wilson var stofnuð í Dundee, Skotlandi, árið 1984 af þeim Gary Clark, Kit Clark og Ged Grimes.  Upphaflega hét sveitin Spencer Tracy en nafninu var fljótlega breytt í Danny Wilson.  Sveitin var þá nefnd eftir Danny Wilson, persónu leikinni af Frank Sinatra í kvikmyndinni Meet Danny Wilson frá árinu 1952.  Hljómsveitin gaf út tvær breiðskífur - Meet Danny Wilson (1987) og Bebop Moptop (1989) - en hvorug þeirra náði miklum vinsældum.  Á fyrri plötunni mátti þó finna lagið Mary's Prayer sem varð geysivinsælt, hvort tveggja í Bandaríkjunum og í Bretlandi, og lifað hefur góðu lífi síðan.  Það má því segja að Danny Wilson hafi verið það sem kallað er one hit wonder.  Það er einmitt myndbandið við lagið Mary's Prayer sem má finna hér fyrir neðan.  Danny Wilson hætti störfum árið 1990.
Heimildir: www.allmusic.com, www.wikipedia.org
Danny Wilson - Mary's Prayer (1987)
General Public var stofnuð af þeim Dave Wakeling (söngur, gítar) og Ranking Roger (söngur) árið 1983 en þeir félagar höfðu fram að því verið meðlimir sveitarinnar The English Beat.  Wakeling var helsti lagasmiður sveitarinnar og spilaði hún að mestu nýrómantískt léttpopp, á stundum undir ska-áhrifum.
General Public sendi frá sér tvær breiðskífur - All the Rage (1984) og Hand to Mouth (1986) - áður en hún hætti störfum árið 1987.  Þekktasta lag sveitarinnar, Tenderness, prýddi fyrri skífuna, ásamt lögum eins og Never You Done That, As a Matter of Fact og General Public.  Vinsælustu lögin á síðari skífunni voru Come Again! og Too Much or Nothing.  Árið 1994 kom sveitin saman á ný og gerði plötu sem kom út árið 1995 og bar titilinn Rub It Better.  Sú plata náði litlum vinsældum og úr varð að sveitin lagði endanlega upp laupana skömmu síðar.
Heimild: www.allmusic.com
General Public - Tenderness (1984)
Jæja, nú hefur gengi íslensku krónunnar sunkað niður síðustu mánuði og náð sögulegri lægð.  Fréttatímarnir hafa því verið uppfullir af barlómi og hræðilegum fréttum af hækkandi lánum og hækkandi eldsneytisverði.  Samkvæmt sumum ku besta lausnin á vandamálinu sú að ríkið hlaupi undir bagga með almenningi og bjargi honum sem snöggvast frá hyldýpi skuldanna.  Þetta er nú meiri vitleysan.  Fólk verður bara að taka afleiðingum gjörða sinna í þessum málum sem öðrum.
Auðvitað er leiðinlegt að fólk fari á hausinn og ég óska engum þess en hinsvegar mátti alveg sjá í hvað stefndi og það er kominn tími til að Íslendingar láti sér að kenningu verða þegar kemur að botnlausri neyslu.  Þarf fólk virkilega að kaupa nýjan bíl á þriggja mánaða fresti, vélsleða, mótorhjól, 50" flatskjá, nýja eldhúsinnréttingu á hverju ári og tvær utanlandsferðir á ári??  Ég er viss um að þeir eru fáir í fjárhagslegum vandræðum nú sem sniðu sér stakk eftir vexti í peningamálum sínum en fylgdust með öðrum eyða um efni fram.
Hvað hátt eldsneytisverð varðar er til einföld lausn fyrir þá sem ekki eiga fyrir bensíndropanum:  Að keyra minna!
Ég minnist þess nú þegar ég ræddi erlendu lánin við mann einn mér nákominn í október sl.  Honum fannst það sjálfsagt mál að taka lán í erlendri mynt þó svo að hann hefði laun í íslenskum krónum.  Félagi hans hafði nefnilega reiknað út að gengi krónunnar þyrfti að lækka um 20% til að það væri hagkvæmara að taka lán í íslenskum krónum með íslenskum vöxtum.  Síðan þá hefur krónan lækkað um 30% miðað við evru.
Ja, mikið óskaplega er ég feginn að ég sleppti því að kaupa nýjan bíl, vélsleða, mótorhjól, eldhúsinnréttingu og utanlandsferð, allt á lánum, eins og allir hinir gerðu.  Það er jú skárra að vera púkó en á hausnum!
Áður en þetta blogg mitt deyr endanlega drottni sínum hef ég ákveðið að gera tilraun til að blása í það lífi, smella á það kossi lífsins.  Ég hef hugsað mér að kynna eina gamla og góða 80's hljómsveit í hverri viku með því að setja inn tónlistarmyndband af YouTube og stuttan fróðleikstexta um sveitina.
Þótt flestar góðar 80's hljómsveitir hafi komið frá Bretlandi er það amerísk hljómsveit sem ríður á vaðið.
Cock Robin var stofnuð árið 1984 af Peter Kingsbery (söngur, bassi, hljómborð, píanó), Önnu Lacazio (söngur), Clive Wright (gítar) og Louis Molino III (trommur).  Peter Kingsbery var driffjöður sveitarinnar og samdi langflest laga hennar.  Á sjö ára ævi sinni gaf sveitin út þrjár hljóðversplötur; Cock Robin (1985), After Here Through Midland (1987) og First Love: Last Rites (1990).  Hljómsveitin var hvað þekktust fyrir framúrskarandi lagasmíðar Kingsbery og frábæran söng þeirra Kingsbery og Lacazio.  Má því segja að þau tvö hafi verið kjarni hljómsveitarinnar og voru þau einu meðlimir hennar sem komu að gerð allra hljómplatna sveitarinnar.  Cock Robin kom aftur saman árið 2006 og sendi frá sér plötuna I Don't Want to Save the World.
Meðal þekktustu laga Cock Robin eru The Promise You Made, When Your Heart Is Weak, Just Around The Corner, Worlds Apart og Thought You Were on My Side.  Það er einmitt myndbandið við síðasttalda lagið sem má finna hér að neðan.
Heimild: www.allmusic.com
Cock Robin - Thought You Were on My Side (1985)
...og í stað þess að tuða í hljóði yfir lélegu málfari á mbl.is, sem gerist æði oft, þá ætla ég að tuða hér.
Maður segir að það megi lítið út af BERA en ekki bregða.
Sá ágæti vefur, mbl.is, sem ég skoða oft og títt verður nú að athuga sinn gang.  Það fer að heyra til undantekninga ef það eru ekki málfarsvillur í fréttum hans.  Nú skora ég á umsjónarmenn vefjarins og blaðamenn hans að taka sig taki.